Vá hvað það eru margir sem kíkja hingað ennþá, spurning að byrja að skrifa aftur...
Smá update allavega á ástandinu hjá mér:
Ég er ekki kolfallin þó að ekki hafi heyrst í mér lengi, hef reyndar þyngst svoldið, en fituprósentan breyttist ekki mikið, þannig að ég dreg þá ályktun að mikill hluti séu vöðvar, ég finn líka t.d. mikinn mun á lærunum.
Ég held matardagbók með vini mínum þannig að hann les yfir.
Fór í nammibindindi í heilan mánuð, var mjög stolt af mér. Ætla núna að hafa einn nammidag, en hef reyndar ekki haldið það 100%, en ætla að vera í (a.m.k.) mánaðar brauðbanni (búin með viku), nema ætla að leyfa mér að borða mjög gróft brauð og flatkökur.
Ég er búin að vera nokkuð dugleg að æfa, fer 2x á morgnana fyrir skóla (mánud. og miðvikud.) í brjálaða brennslu og svo í afró um kvöldið, s.s. 2x á dag. Ég hef reyndar ekki mætt alveg 100% eins og ég gerði í byrjun skólans því stelpan sem ég æfði alltaf með þurfti að hætta vegna breyttra aðstæðna.
Ég þarf líka að breyta markmiðunum mínum svoldið þar sem ég er komin á eftir áætlun..
Þarf svo að taka einn góðan rúnt og kíkja á ykkur skvísur!
Kveðja Lífstíll_