Ohh.. var búin að skrifa helling en það datt út! 
En ég er ekki að standa mig 100% þessa dagana, samt mjög dugleg að
æfa en er bara um 80% með mataræðið, ég hef fengið mér svona einn
súkkulaðibita þegar ég kem heim eftir vinnu. (Það er því miður
ALLTAF til nammi heim hjá mér, kærastinn minn verður alltaf að fá
sér eftir kvöldmat). En ég þarf bara að taka mig taki, ég hef getað
staðist þetta hingað til. En ég stenst ennþá alltaf gúmmelaðið í
kaffinu í vinnunni, stelpurnar eru einmitt alltaf að tala um
hvernig ég fari að þessu. 
Ég pantaði mér bók af netin, Making the cut
eftir Jillian Michaels sem er annar þjálfarinn í the biggest
loser. Ég hlakka til að fá bókina og vona að hún sparki aðeins í
rassinn á mér, ég finn að ég er búin að missa agann og ákafann
sem ég hafði í byrjun. 
Ég þyngdist um 500g í seinustu vigtun, það er búið að vera svoldil
"óregla" á mér, drakk 2 helgar í röð og er með vinkonu í heimsókn
frá útlöndum, er svo að fara í útilegu um helgina en held að það
verði nú engin djammferð, en ég veit að útilegum fylgir oft
sukkmatur en ég ætla að gera mitt besta í mataræðinu.
Ég er ekki búin að fara í skokkhópinn, ég þori eiginlega ekki, er
búin að missa af svo mörgum æfingum að ég held að allir séu orðnir
miklu betri en ég að skokka.
En ég hef farið nokkrum sinnum
sjálf, hringinn minn sem ég ætla að geta hlaupið í einum sprett í
lok sumars.
Nóg að sinni, ég skal svo reyna að vera duglegri að blogga, en ég
skrifa örugglega ekki fyrr en á laugardag eða sunnudag, því ég verð
út á landi allavega fimmtudag-laugardags.
Kveðja Lífstíll,
p.s. hvar eru DDV vörurnar í Hagkaup, t.d. í kringlunni, ég fór
þangað um daginn og "skimaði" á eftir þeim, viðurkenni samt að ég
leitaði ekki vel, var á svolitlri hraðferð.